Getraunin tengist að þessu sinni ástardrömum, barna- og unglingabókmenntum, myndasögum, dægurtónlist og vísindamyndum.
Spurt er um skyld nöfn á alþekktum skúrkum og svörtum sauðum.Tveir þeirra elstu eru frá 19. öld. Annar þeirra birtist í víðfrægri ástar- og átakasögu eins mest lesna kvenrithöfundar Bandaríkjanna síns tíma hvers titill ber heiti aðalkvenpersónunnar og hefur sú margoft komið út í íslenskri þýðingu m.a. frá Sögusafni heimilanna. Hinn var foringi flökkufólks sem í einni af átakanlegustu barnasögum 19. aldar rændi bláeygum drenghnokka, vistaði hann hjá sér í helli og krafðist lausnargjalds. Þriðja nafnið tengist í fyrsta lagi svola nokkrum og bófa af kattarkyni sem ein frægasta myndasögu- og teiknimyndamús sögunnar reynir tíðum að koma á bak við lás og slá. Í öðru lagi tengist það nafn svakamenni og öðrum af höfuðandstæðingum sunnlensks sveitapilts og þyrluflugmanns í vinsælum sagnabálki frá sjötta áratug síðustu aldar og í þriðja lagi tengist nafnið bankaráni í lagi þekktrar íslenskrar dans- og fjörsveitar frá áttunda áratug sömu aldar. Fjórða og síðasta nafnið tengist svo máttugri persónu í vísindamyndaröð sem gengur í lið með illum öflum áður en hún snýst á ný til góðra verka með því að fórna lífi sínu til bjargar nákomnum ættingja.
Spurt er nú:Nefnið a.m.k. þrjú af nöfnum hinna svörtu sauða og skúrka á íslenskuog að minnsta kosti þrjú af þeim verkum sem nöfnin tengjast.
Verðlaunin eru gjafakort fyrir nýju skírteini á Borgarbókasafni eða endurnýjun á því gamla eða bókin Sólgos eftir Åsa larsson.
Svar sendist á: gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is