Vegna aðstæðna sem hljóta að teljast óviðráðanlegar hefur Bókmenntavefurinn legið niðri undanfarna daga. Unnið er hörðum höndum að því að koma öllu í samt lag aftur, en það verður að öllum líkindum ekki fyrr en um miðja næstu viku.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en minnum um leið á fróm orð Guðmundar kíkis, um það er blótneytið rak hann af túninu: ,,Slátt lét ég niður falla þann daginn en rímur kvað ég mér til hugarhægðar."