Sóla og sögubíllinn Æringi hafa vanið komur sínar í Húsdýragarðinn undanfarna viku, og ætla að halda því áfram um verslunarmannahelgina og fram í næstu viku. Laugardag, mánudag [ekki sunnudag, eins og áður var auglýst], þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag verða þau Sóla og Æringi með sögustund í Húsdýragarðinum kl. 11:00 og 12:00.
Eftir hádegi þessa sömu daga verður Æringi svo á ferð og flugi á Austurvelli, Lækjartorgi eða hvar sem börn finnast í góðu skapi...