Laugardaginn 10. október kl. 15 opnar sýning á þýskum myndasögum í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi. Sérstakur gestur sýningarinnar verður myndasöguhöfundurinn Line Hoven og hún stýrir einnig myndasögusmiðju sunnudaginn 11. október frá kl. 13 – 16. Smiðjan er fyrir fólk á aldrinum 12 – 99 ára og eru allir velkomnir, óháð fyrri reynslu af myndasögugerð. Line notar sérstaka tækni við myndasögugerð sína og mun sú tækni verða ráðandi í smiðjunni. Ekkert kostar að taka þátt í smiðjunni og þátttakendur fá allt efni á staðnum. Þeir eru hins vegar beðnir um að koma með eitthvað til að vinna út frá, t.d. persónulega ljósmynd, úrklippu úr blaði eða einhvern annan hlut sem þeir vilja nota sem kveikju að sinni vinnu. Þar sem fjöldi er takmarkaður þarf að skrá þátttöku fyrir mánudaginn 21. september. Skráning fer fram í tölvupósti: kristin.vidarsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-6123 / 411-6111 milli kl. 9 og 17 virka daga. Sýningin og smiðjan eru samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins í Reykjavík og Goethe Institut í Kaupmannahöfn. Mynd úr bókinni Liebe Schaut Weg eftir Line Hoven
Laugardaginn 10. október kl. 15 opnar sýning á þýskum myndasögum í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi. Sérstakur gestur sýningarinnar verður myndasöguhöfundurinn Line Hoven og hún stýrir einnig myndasögusmiðju sunnudaginn 11. október frá kl. 13 – 16. Smiðjan er fyrir fólk á aldrinum 12 – 99 ára og eru allir velkomnir, óháð fyrri reynslu af myndasögugerð. Line notar sérstaka tækni við myndasögugerð sína og mun sú tækni verða ráðandi í smiðjunni.
Ekkert kostar að taka þátt í smiðjunni og þátttakendur fá allt efni á staðnum. Þeir eru hins vegar beðnir um að koma með eitthvað til að vinna út frá, t.d. persónulega ljósmynd, úrklippu úr blaði eða einhvern annan hlut sem þeir vilja nota sem kveikju að sinni vinnu.
Þar sem fjöldi er takmarkaður þarf að skrá þátttöku fyrir mánudaginn 21. september. Skráning fer fram í tölvupósti: kristin.vidarsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-6123 / 411-6111 milli kl. 9 og 17 virka daga.
Sýningin og smiðjan eru samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins í Reykjavík og Goethe Institut í Kaupmannahöfn.
Mynd úr bókinni Liebe Schaut Weg eftir Line Hoven