Fréttayfirlit

Sari Maarit Cedergren í Artótekinu

Föstudaginn 18. desember var opnuð sýning á verkum Sari Maarit Cedergren myndlistarmanns í Artóteki.
Sýningin er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
http://www.artotek.is

Sari er fædd í Grankulla í Finnlandi og ólst upp í Stokkhólmi í Svíþjóð. Árið 1986 flutti hún til Íslands og hefur búið hér síðan. Myndlistarmenntun sína hlaut hún í Stokkhólmi, Helsinki og í Myndlista- og handíðaskóla Íslands þar sem hún lauk námi úr skúlptúrdeild 1993. Árið eftir fór hún sem gestanemandi til Stokkhólms í Konstfack skólann og í Arkitektaskólann KTH. Síðastliðið vor lauk Sari námi í kennslufræðum frá Listaháskóla Íslands og kennir nú listgreinar við Fjölbrautaskólann í Garðabæ ásamt því að vinna að eigin myndlist.

Íslenskt veður hefur verið Sari innblástur undanfarin ár og hefur upplifun hennar birst í verkum hennar. Þau eru lágmyndir úr steypu og gifsi og endurspegla fjölbreytileika íslensks veðurs. Slydda, él, mugga og súld eru allt nöfn á verkum hennar auk margra annarra sem hvert fyrir sig túlka ákveðin veðrabrigði. Í verkum Sari skipta ljós og skuggar miklu máli og örlítil breyting á birtu getur gert upplifun áhorfandans á verkinu alveg nýja. Þess má geta að Sari var skálavörður í Emstrum í tvö sumur og varð sú reynsla henni að yrkisefni í sýningarnar Hviða 2007 og Umhleypingar 2006.

„Ég hef unnið með viðfangsefnið veðurfar sem hefur áhrif á þjóðfélagið í heild sinni auk félagslegra áhrifa þess á samskipti fólks og líf“ segir Sari. „Í framhaldi af þeirri vinnu fór ég að velta fyrir mér íslenskum málsháttum, sem hafa mikla skírskotun í félagslegt og pólitískt ástand í dag. Ég læt rýmið og staðinn móta sýninguna að nokkru leyti. Ég skoðaði hlutverk staðarins sem menningarstofnunar, staðar þar sem fólk hittist, skoðar bækur og listaverk og á ýmis samskipti. Með allt það í huga ásamt íslensku málsháttunum skapaði ég verkin á sýningunni og myndaði þannig brú á milli áhorfandans og verkanna.“

Á sýningunni eru nokkur verk unnið í gifs innblásin af íslenskum málsháttum og er Sari þar að skírskota til sjónrænnar birtingar orða. Á sýningunni er einnig stuttmynd sem sýnir hvernig hún notar eigin líkama við gerð verkanna.

Sari hefur hlotið ýmsar viðurkenningar s.s. vinnustofudvöl í Finnlandi og frá Akademiska Hus, Konstfacks förvaltare i Svíþjóð, styrki úr Menningar- og ferðasjóði Muggs, Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur og frá Reykjavíkurborg. Einnig fékk hún verðlaun fyrir námsárangur í Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1993. Nokkur verk Sari eru í opinberri- og einkaeigu. Hún er félagi í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík, Sambandi íslenskra myndlistarmanna og Félagi íslenskra myndlistarkennara.

Sýningin stendur út janúar 2010.
Opið er mánudaga-fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-19
og um helgar kl. 13-17

Artótekið leigir út og selur íslenska samtímamyndlist til einstaklinga og fyrirtækja.
Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�