Getraunin snýst að þessu sinni um riddarabókmenntir, kvikmyndleikara og nafn á hljómsveit.
Spurt er um skoskan 19. aldar rithöfund sem skrifaði bók um gyðingastúlku sem varð ástfangin af riddara sem löngu seinna var leikinn af breskum leikara hvers leikhæfileikar, að eigin sögn, fólust einkum í að lyfta og síga brúnum. Téður leikari gat sér síðar allgott orð fyrir gamansama túlkun á breskri hetju sem fyrrum mjólkurpóstur, líkkistufægir og líkamsræktartröll af skoskum uppruna hafði gert heimsfræga. Titillag fyrstu myndar leikarans með lipru augabrýrnar um hetjuna var samið af fyrrum síðhærðum bassaleikara og höfuðpaur nýlegrar sveitar og meðlimi ofurfrægrar sveitar frá norðvestur Englandi sem þá var hætt störfum. Spurt er:
1. Hvað hét rithöfundur riddarasögunnar?
2. Hvað heita leikararnir sem um er getið? 3. Hvað hét hin nýlega hljómsveit bassaleikarans og lagasmiðsins forðum síðhærða?
Sendið svar til gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is. Dregið verður úr réttum lausnum í lok mánaðarins og eru verðlaunin gjafakort fyrir skírteini á Borgarbókasafni.