Heilahristingur - heimanámsaðstoð á bókasafninu Þriðjudaginn 12. janúar var opnuð heimasíða Heilahristingsins að viðstöddum fjölda gesta. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnistjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni og Þór Gíslason verkefnastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða krossins sögðu frá verkefninu, Alis, nemandi í Fjölbraut í Breiðholti sagði frá reynslu sinni af heimanámsaðstoðinni, rappararnir Marlon Pollock og Bjartur Guðjónsson skemmtu gestum af mikilli snilld og Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi og fulltrúi Menntaráðs, opnaði heimasíðuna sjálfa með aðstoð nemenda.
Marlon og Bjartur rappa (myndband 6.6 mb)
Fjölmennt var á opnunni
Alis lýsir reynslu sinni af heimanámsaðstoðinni
Heilahristingur er heimanámsaðstoð við nemendur í 5.-10. bekk í grunnskólum Breiðholts og á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti. Tilgangur verkefnisins er að styðja og styrkja nemendur í námi og kynna þeim þá þjónustu sem bókasafnið býður upp á í tengslum við nám, áhugamál, tómstundir og annað. Heimanámsaðstoðin er krydduð með ýmsum skemmtilegum uppákomum, s.s. dansi, kvikmyndasýningum og tónlist. Megináhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á hvetjandi umhverfi sem styður við skapandi barna- og unglingastarf. Heilahristingur fer fram tvo daga í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14.30 - 16.00. Sjálfboðaliðar munu leiðbeina nemendum og eru þeir m.a. framhaldsskólanemar, háskóla og kennaranemar svo of kennarar á eftirlaunum. Heilahristingur er samstarfsverkefni Borgarbókasafns og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og er verkefnið styrkt af þróunarsjóði innflytjendamála og Menntaráði Reykjavíkur.
www.heilahristingur.is