Fréttayfirlit

Sjálfboðaliðar óskast


HEILAHRISTINGUR - heimanámsaðstoð á bókasafninu

Viltu leggja þitt af mörkum, auka við reynslu þína og kynnast um leið skemmtilegum krökkum? Ertu laus á þriðjudögum eða fimmtudögum kl.14.30 - 16.00?

Heilahristingur – heimanámsaðstoð á bókasafninu er samstarfverkefni Borgarbókasafns og Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Heimanámsaðstoðin fer fram á Borgarbókasafninu í Gerðubergi og er markmið aðstoðarinnar að styðja nemendur í námi, efla sjálfstraust þeirra og kynna þeim það sem bókasafnið hefur upp á að bjóða. Nemendurnir eru úr 5.-10. bekk í grunnskólum í Breiðholti og á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti.

Við leitum að sjálfboðaliðum frá 18 ára aldri sem hafa áhuga á að aðstoða nemendur við heimanámið.

Nánari upplýsingar veitir Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is, gsm: 6181420 eða Þór Gislasson, thorgisla@redscross.is , gsm 8972040

Skoðið nýopnaða heimasíðu Heilahristingsins.


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�