Fréttayfirlit

Lausn á getraun janúarmánaðar


Spurt var um skoskan 19. aldar rithöfund sem skrifaði bók um gyðingastúlku sem varð ástfangin af riddara sem löngu seinna var leikinn af breskum leikara hvers leikhæfileikar, að eigin sögn, fólust einkum í að lyfta og síga brúnum. Téður leikari gat sér síðar allgott orð fyrir gamansama túlkun á breskri hetju sem fyrrum mjólkurpóstur, líkkistufægir og líkamsræktartröll af skoskum uppruna hafði gert heimsfræga. Titillag fyrstu myndar leikarans með lipru augabrýrnar um hetjuna var samið af fyrrum síðhærðum bassaleikara og höfuðpaur nýlegrar sveitar og meðlimi ofurfrægrar sveitar frá norðvestur Englandi sem þá var hætt störfum.

Spurt var:
1. Hvað hét  rithöfundur riddarasögunnar?
2. Hvað heita leikararnir sem um er getið?
3. Hvað hét hin nýlega hljómsveitin bassaleikarans og lagasmiðsins forðum síðhærða?

Svör:
1. Sir Walter Scott
2. Roger Moore / Sean Connery
3. Wings

Matthildur Sif Jónsdóttir var dregin úr hópi þeirra sem skiluðu inn réttum lausnum og fær hún gjafabréf fyrir nýju skírteini á Borgabókasafn að launum.


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�