Föstudaginn 5. febrúar kl. 17.00 var opnuð sýning á verkum Guðrúnar Auðunsdóttur myndlistarmanns í Artóteki.Sýningin nefnist Grunnsópað hefi ég gjörvallar hirzlur og er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.www.artotek.is
Guðrún hefur búið í Kaupmannahöfn í Danmörku s.l. 13 ár. Hún stundaði nám í textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnám við Arkitektaskóla Listaakademíunnar í Kaupmannahöfn þar sem hún lærði hönnun leikmynda og búninga fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir.
Guðrún á að baki fjölbreyttan starfsferil við sjónlistir. Hún var kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og á myndlistarsviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Hún vann sem hönnuður hjá Gefjun á Akureyri og var deildarstjóri myndlistardeildar Pennans í Reykjavík. Hún rak Gallerí Langbrók í Lækjargötu ásamt fleiri myndlistarkonum í nokkur ár. Eftir að Guðrún flutti til Kaupmannahafnar vann hún sem aðstoðarmaður Dichen Lindberg fatahönnuðar um skeið.
Guðrún starfar núna eingöngu við myndlist. Hún málar, gerir collageverk, teiknar og tekur ljósmyndir sem hún vinnur áfram með í tölvu.
Um þessar mundir dvelur Guðrún í gestavinnustofu SÍM (Sambands íslenskra myndlistarmanna) á Seljavegi. Guðrún er félagsmaður í SÍM og er þetta í þriðja sinn sem hún fær úthlutað gestavinnustofu á vegum félagsins. Einnig var hún gestalistamaður í vinnustofu í Englandi þegar hún hlaut starfslaun listamanna í 6 mánuði.
Sýningin Grunnsópað hefi ég gjörvallar hirzlur er þriðja einkasýning Guðrúnar en einnig hefur hún tekið þátt í samsýningum hérlendis, í Danmörku og víðar. Guðrún hefur hannað leikmyndir og búninga allnokkurra leiksýninga, m.a. fyrir Þjóðleikhúsið, Leikfélag Akureyrar og Alþýðuleikhúsið.
Á sýningunni eru textílverk, brot úr gömlum ljósmyndum, málverkog skissur. Smá brot úr heild.
Artótekið leigir út og selur íslenska samtímamyndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.
Sýningin stendur til 14. mars 2010.Opið er mánudaga-fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-19 og um helgar kl. 13-17