Fréttayfirlit
Húmor, Amor, ljóðlist og notaleg samvera
Húmor, Amor, ljóðlist og notaleg samvera
Vertu hjartanlega velkomin í Söguhring kvenna sunnudaginn 7. febrúar kl. 15.00 – 16.30, Borgarbókasafn, Tryggvagötu 15, 6. hæð.
Á sunnudaginn verðum við með sköpun sem tengist Húmor og Amor á meðan við hlustum á sögur kvenna og tölum saman.
Við hvetjum konur til að koma með ljóð á hvaða tungumáli sem er. Þær sem það vilja geta deilt ljóðunum með hinum, lesið þau upp eða fengið einhverja aðra til að gera það. Það verður einnig hægt að finna innblástur í ljóðabókum bókasafnsins sem munu verða á staðnum. Við búum til falleg og skemmtileg kort sem hægt er að skrifa á það sem manni liggur á hjarta, t.d. ljóðin - eða bara hvað sem er.
Á konudeginum 21. febrúar munum við sýna kortin á bókatorginu á 1. hæðinni í Borgarbókasafninu í Tryggvagötu.
Dagskrá
-Opið spjall og notaleg samvera
-Búum til falleg og ljóðræn kort
-Njótum saman ljóðlistar og upplesturs
Kaffi og meðlæti í boði Borgarbókasafns (allar samt velkomnar að koma með uppáhaldskökuna sína :).
Leiksvæði fyrir börnin.
Við hlökkum til að sjá þig og vinkonur þínar, erlendar sem íslenskar !
Allar konur velkomnar.
Söguhringurinn er undir leiðsögn Paolu Cardenas og Kristínu R.Vilhjálmsdóttur
Nánari upplýsingar: paolac77@gmail.com/ kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
Til baka