Fréttayfirlit

Skrípó 2010

MyndasögumerkiBorgarbókasafn og Myndlistaskólinn í Reykjavík standa fyrir myndasögusamkeppni - og sýningu fyrir fólk á aldrinum 10 - 20+. Skilafrestur í keppnina er 25. mars.

Sýningin verður opnuð sumardaginn fyrsta, 22. apríl, en á sama tíma verða haldnar tvær barnamenningarhátíðir í Reykjavík.

Í tilefni af því að árið 2010 eru sextíu ár liðin síðan myndasaga Charlie Schulz, Smáfólk (Peanuts), birtist fyrst er þema keppninnar tileinkað dagblaðamyndasögum undir yfirskriftinni „Skrípó: lítil saga í fáeinum römmum“.

Hámarkslengd efnis er 2 A4 blöð eða ein síða í A3 (öðru megin) og eru þátttakendur beðnir að nota frekar þykkan pappír en ekki venjuleg fjölritunarblöð til að tryggja að verkin verði fyrir sem minnstu hnjaski í upphengingu.

Vinnuaðferðin er algerlega frjáls og verkin geta hvort sem er verið myndasaga eða stök mynd með myndasögutema og / eða sem tengist myndasögum á einhvern hátt.

Þátttakendur eru beðnir að skila verkunum á Borgarbókasafnið, aðalsafn, Tryggvagötu 15, í umbúðum merktum: „Skrípó 2009“. Vinsamlega athugið að láta fylgja fullt nafn, fæðingarár, símanúmer og tölvupóstfang.

Upplýsingar veita Úlfhildur Dagsdóttir (ulfhildur.dagsdottir@reykjavik.is) og Þorbjörg Karlsdóttir (thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is), eða í síma: 4116100.

Auglýsing til útprentunar (pdf 496)

Senda á Facebook
Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�