Fréttayfirlit
Húmor og Amor á konudaginn
Söguhringur kvenna býður upp á notalega samverustund á konudaginn sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15.
Það verður kaffi á könnunni frá Kaffi Haítí og meðlæti í boði frá Kaffi París. Arngrímur Vídalín fer með eigin ljóð og Amal Tamimi, Fitore Berisha og Paola Cardenas flytja erindi í anda húmors og Amors.
Kortum eftir konur í Söguhring kvenna verður stillt út og einnig verður hægt að hanna eigin kort og skrifa á þau það sem hverjum og einum liggur á hjarta.
Allir velkomnir!
Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur
og Samtaka kvenna af erlendum upprunna.
Til baka