Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að koma á fót almennri lögfræðilegri ráðgjöf fyrir borgarbúa vegna sérstaks ástands í efnahagsmálum og mun Orator, félag laganema við Háskóla Íslands, bjóða borgarbúum upp á lögfræðiráðgjöf á Borgarbókasafni á næstu vikum.
Ráðgjöfin verður veitt á eftirfarandi tímum:
22. febrúar kl. 16.00-18.00 Aðalsafn01. mars kl. 16.00-18.00 Foldasafn08. mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn15. mars kl. 16.00-18.00 Aðalsafn22. mars kl. 16.00-18.00 Foldasafn29. mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn12. apríl kl. 16.00-18.00 Aðalsafn