Fréttayfirlit

Ást og húmor í Söguhring kvenna

Á konudaginn bauð Söguhringur kvenna uppá notalega stemningu á bókatorgi aðalsafns Borgarbókasafns í Tryggvagötu. Í stað hefðbundins blómvandar spruttu orðablóm á safninu og fræddust gestir um húmor, ást og líf kvenna í ólíkum menningarheimum.

Amal Tamimi og Kristín R. Vilhjálmsdóttir lásu úr Kóraninum á arabísku og íslensku. Textinn sem varð fyrir valinu fjallar um konur og stöðu þeirra og fylgdu bæði spurningar og umræður í kjölfarið.  

Paola Cardenas fór með fyndið ljóð á spænsku sem hefur verið henni hugleikið allt frá barnæsku og í framhaldi af því var rætt um hvort húmor sé ólíkur milli menningarheima. Paola sagðist t.d. hafa talið sig fyndna í upprunalandi sínu en hún hafi síðan upplifað sig allt öðru vísi að þessu leyti eftir að hún flutti til Íslands og fleiri könnuðust við að það gæti verið erfitt að aðlagast húmornun í nýju landi. Margir meðal gesta gátu bætt við reynslusögum á þessu sviði og gaf það tilefni til spaugilegra umræðna.

Fitore Berisha talaði um það að lifa í tveimur ólíkum heimum sem jafnvel má segja að stangist á, en hún lýsti skoðun sinni á stöðu kvenna í Kosovo og á Íslandi. Hér er hægt er að nálgast erindi hennar á ensku (pdf 11 kb).

Ljóðskáldið Arngrímur Vídalín fór loks með húmorísk ástarljóð úr tveimur ljóðabókum sem hann hefur sent frá sér. Á meðan gestir nutu dagskrárinnar gæddu þeir sér á fjölmenningarlegum veitingum frá Kaffi Haiti og Kaffi París.

Næsti Söguhringur kvenna verður haldinn sunnudaginn 7. mars og eru allar konur velkomnar.

Konudagurinn

Konudagurinn

Konudagurinn

Konudagurinn


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�