Mikið var um að vera á aðalsafni sunnudaginn 28. febrúar. Sóla sögukona mætti með afmæliðsbarnið, sögubílinn Æringja, sagði sögur og útdeildi kókómjólk í boði Mjólkursamsölunnar, en Æringi fagnar nú tveggja ára afmæli sínu. Eftir sögustund í hinum ævintýralega Æringja var boðið upp á þrjúbíó á Reykjavíkurtorgi og nutu börn og foreldrar þess að fylgjast með myndinni Palli var einn í heiminum.
Sóla „lokkar“ börn í sögustund í Æringja
... og segir þeim síðan sögur með tilþrifum
Palli var einn í heiminum ásamt áhorfendum