Í febrúar var spurt um tiltölulega nýlátna nafna, rokkkóng og titil á kvikmynd.
Getraunin hljóðaði svo: Spurt er um nafna tvo. Báðir eru þeir tiltölulega nýlátnir. Annar var einn frægasti bjór- og viskískríbent veraldar, hinn varð kornungur stjarna í hópi heimsþekktra söngbræðra. Hann hóf sólóferil, varð af mörgum talinn konungur poppsins og giftist rokkkonungsdóttur. Sá kóngur var einnig kunnur fyrir leik sinn í kvikmyndum, sem flestar þóttu reyndar sífellt slakari eftir því sem þeim fjölgaði.
1. Hvað hétu þeir nafnar? 2. Hvað hét rokkkóngurinn? og 3. Hvað hét fyrsta myndin sem hann lék í?
Svör:1. Þeir nafnar hétu Michael Jackoson2. Rokkkóngurinn er að sjálfsögðu Elvis Presley3. Fyrsta myndin sem hann lék í var Love Me Tender
Sveinbjörg Jónsdóttir var dregin úr hópi þeirra sem skiluðu inn réttum lausnum og fær hún gjafakort fyrir nýju skírteini á Borgarbókasafni að launum.