Fréttayfirlit
Pétur og úlfurinn í aðalsafni
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og þar er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra kl. 15.00. Næsta sunnudag, 7. mars, verður brúðuleikhús.
Sýningin er byggð á hinni óviðjafnanlegu sögu og tónverki ,,Pétur og úlfurinn” eftir Sergei Prokofiev. Prokofiev samdi þetta fallega tónverk í þeim tilgangi að kenna börnum að skilja og njóta tónlistar. Bernd Ogrodnik færir okkur þetta ævintýri á formi brúðuleikhúss þar sem tónlistin er birt myndrænt með aðstoð handútskorinna leikbrúða sem Bernd stjórnar af sinni alkunnu snilld.
Kynntu þér dagskrá sunnudagana!

Til baka