Fréttayfirlit

Getraun marsmánaðar

SpurningamerkiGetraunin tengist að þessu sinni fjórum kvikmyndaleikurum, sem allir eru frægari fyrir líkamlegt atgervi frekar en afburða leikhæfileika. Tveir þeirra eru þó þekktir fyrir stutt og laggóð tilsvör sem flokkast verða með eftirminnilegustu tilsvörum kvikmyndasögunnar.

Þó af erlendu bergi brotnir séu, slógu þeir allir meira og minna í gegn í bandarískum hasar- og spennumyndum. Einn er lögreglustjórasonur frá Mið-Evrópu, annar sonur endurskoðanda og blómasala frá Norður-Evrópu, þriðji Skandínavískur, sonur verkfræðings, og sá fjórði og sá eini sem er látinn, var fæddur í Bandaríkjunum, sonur námaverkamanns frá Eystrasaltslandi. Áður en til kvikmyndaleiks kom fengust flestir þeirra ýmist við líkamsrækt eða sparkbox.

Þrír þeirra hafa leikið vélmenni í misfrægum framtíðartryllum, þar af tveir saman í sömu myndinni. Annar af þeim er þó e.t.v. flestum minnistæðastur sem risavaxinn andstæðingur smávaxins boxara, sem aldrei gafst upp þótt móti blési. Sá elsti þeirra var mörgum kunnur sem jarðgangnagrafari með innilokunarkennd í einni frægustu stríðsfangamynd seinni heimstyrjaldar, en sló síðar endanlega í gegn í hefndarmyndaseríu bresks leikstjóra um arkitekt sem tekur lögin í eigin hendur eftir grimmilega árás á fjölskyldu hans.

Nú er spurt:
1. Hvað heita þessir harðjaxlar?
2. Nefnið að minnsta kosti eitt af frægum tilsvörum þeirra.
3. Hvað hét framtíðarmyndin sem tveir þeirra léku saman í?
og
4. Hvað hét stríðsfangamyndin sem sá elsti þeirra lék í?

Nóg er að nefna þrjá harðjaxla og svara tveimur af spurningum tvö til fjögur.

Sendið svör til: gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is.

Dregið verður úr réttum lausnum í lok mánaðarins. Verðlaunin eru sem fyrr, gjafabréfi fyrir nýju skírteini eða endurnýjun á því gamla á Borgarbókasafni.


Senda á Facebook
Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�