Fréttayfirlit
Krílasálmar á fjölskyldumorgnum
Kynning verður á Krílasálmum á fjölskyldumorgnum í Gerðubergi, þriðjudaginn 2. mars og aðalsafni, fimmtudaginn 4. mars kl. 10.30-11.30.
Krílasálmar eru tónlistarnámskeið í kirkjunni fyrir ungbörn og foreldra þeirra. Námskeiðin eru ný af nálinni hér á landi en njóta mikilla vinsælda í kirkjum á hinum Norðurlöndunum. Organisti Fella- og Hólakirkju, Guðný Einarsdóttir og Diljá Sigursveinsdóttir tónlistarkennari, hafa haft veg og vanda af námskeiðunum fram að þessu, en þær kynntust svona starfsemi við nám í Kaupmannahöfn. Rannsóknir hafa sýnt að það að syngja fyrir lítil börn auki einbeitingarhæfileika þeirra og hreyfiþroska. Raddir foreldranna eru þær fyrstu sem ungbörn læra að þekkja og það veitir þeim öryggi og ánægju að heyra þær. Sönghæfileikar skipta því engu máli í þessu samhengi en málið snýst fyrst og fremst um að rækta tengsl foreldris og barns!
Borgarbókasafn Reykjavíkur, í samstarfi við Menningarmiðstöðina í Gerðubergi og Leikskólasvið, stendur fyrir fjölskyldumorgnum þar sem fjölskyldum með börn á aldrinum 0-6 ára er boðið að koma og eiga saman góða stund á bókasafninu. Boðið er upp á óformlega dagskrá um ýmis málefni. Leikföng og bækur fyrir börnin eru á staðnum og boðið upp á kaffisopa.
Meira um fjölskyldumorgnana
Til baka