Fréttayfirlit

Skýrsla um fjölmenningarlegt starf í Borgarbókasafni

Skýrlsa um fjölmenningu
Borgarbókasafn leggur metnað sinn í að þjóna innflytjendum sem best og hefur að leiðarljósi yfirlýsingu IFLA, International Federation of Libraries and Associations, um fjölmenningarlegt bókasafn. Til að ná sem bestum árangri var í febrúar 2008 ráðinn verkefnastjóri fjölmenningar að safninu, Kristín R. Vilhjálmsdóttir. Hér má lesa skýrslu hennar um fjölmenningarleg verkefni safnsins. Með þessari skýrslu vill Borgarbókasafn miðla til annarra tveggja ára reynslu af fjölmenningarlegri starfsemi.

Vonandi verður þessi samantekt öðrum hvatning til að vinna á sömu nótum og bæði safninu og öðrum hvatning til að þróa slíkt starf áfram. Einnig er skýrslunni ætlað að vekja athygli á hlutverki bókasafna hvað varðar mál innflytjenda og ekki síst að stuðla að samvinnu á þessu sviði. Borgarbókasafn þakkar gott samstarf við þá fjölmörgu sem unnið hafa með safninu að þessu mikilvæga málefni. 

Fjölmenningarleg verkefni í Borgarbókasafni Reykjavíkur, skýrsla (pdf 2.64 mb)


 


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�