Fréttayfirlit

Kristín R. Vilhjálmsdóttir tilnefnd til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins

Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni, er tilnefnd til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins í flokkinum „Til atlögu gegn fordómum". Tilnefninguna hlýtur hún fyrir starf sitt og verkefni tengd fjölmenningu.

Kristín var ráðin á Borgarbókasafn fyrir 2 árum sem verkefnastjóri fjölmenningar. Markmið starfsins er meðal annars að stuðla að gagnkvæmri félagslegri aðlögun, skilningi og virðingu sem nauðsynleg er í fjölmenningarlegu samfélagi, rjúfa einangrun og auka færni í íslensku. Kristín hefur unnið frumkvöðlastarf í safninu af smitandi elju og meðal annars efnt til samvinnu við ýmis félagasamtök og stofnanir.

Skýrsla um fjölmenningarlegt starf á Borgarbókasafni 2008-2010

Tölum saman
Kristín ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, Helgu Arnalds og Fitore Berisha, við afhjúpun listaverksins Tölum saman á eins árs afmæli Söguhrings kvenna, 1. nóvember síðastliðinn. Verkið var unnið af konum í Söguhringnum undir leiðsögn Helgu og Fitore.

Senda á Facebook
Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�