Föstudaginn 19. mars kl. 17.00 opnaði sýning á verkum Önnu Sigríðar Hróðmarsdóttur og Guðrúnar Höddu Bjarnadóttur myndlistarmanna í Artóteki. Sýningin nefnist Rabarbari og er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.www.artotek.is
Anna Sigríður og Hadda hafa báðar lokið námi frá Myndlistarskólanum á Akureyri, Hadda árið 1991 og Anna Sigríður 1999. Einnig lærði Anna Sigríður leirkerasmíði hjá Kjarval og Lökken 1973-1977 og fyrir tæpum þremur árum lauk Hadda kennaranámi frá Listaháskóla Íslands.
Anna Sigríður vann lengi vel eingöngu við leirlist en hefur frá því hún lauk námi frá Myndlistarskólanum á Akureyri málað og að hennar sögn eru viðfangsefnin fremur hefðbundin. Fjöllin í Skagafirði hafa til að mynda verið henni hugleikin og mörg þeirra ratað á strigann. Anna Sigríður hefur haldið fjórar einkasýningar og nokkra tugi samsýninga. Hún rak leirkeraverkstæði frá 1977 til 1988 við Suðurgötu 8 í Reykjavík og frá 1988 til 2005 Gallerí ash í Lundi í Varmahlíð. Nú er Anna Sigríður með tvær vinnustofur, í Nökkvavogi og á Seljavegi.
Bakgrunnur Höddu tengist textíllist og þá einkum vefnaði. Útsaumur og annar íslenskur menningararfur er Höddu innblástur við listsköpun og gildir þá einu hvort hún vinnur með textíl, málar, tekur ljósmyndir eða notar önnur efni. Hadda á að baki þrettán einkasýningar og um fimmtíu samsýningar sl. 20 ár á Íslandi, Danmörku og í Kanada. Meðal verka Höddu í opinberri eigu er altarisdúkur í Ólafsfjarðarkirkju og hökull í Snartarstaðakirkju á Svalbarðsströnd. Einnig óf hún vaðmál í fatnað landnámsmanna á grunnsýningu Árbæjarsafns.Hún hefur verið sýningarstjóri nokkurra handverkssýninga, kennt og haldið fyrirlestra um handverk. Einnig hefur Hadda tekið þátt í rekstri gallería í Svíþjóð og á Akureyri.
Anna Sigríður og Hadda hafa nokkrum sinnum sýnt saman og hefur þema sýninganna þá gjarnan verið matartengt s.s. bláskel, kjötsúpa, sushi, jólagrauturinn.Sýningin sem nú opnar í Artótekinu er hins vegar helguð hinni kröftugu plöntu rabarbaranum.
Artótekið leigir út og selur íslenska samtímamyndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.
Sýningin stendur til 2. maí 2010Opið er mánudaga-fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-19 og um helgar kl. 13-17