Borgarbókasafnið og Myndlistaskólinn í Reykjavík stóðu fyrir samkeppni í vetur um myndasögur undir yfirskriftinni „Skrípó: Lítil saga í fáeinum römmum“, og er þetta í annað sinn sem slík keppni er haldin. Þriggja manna úrvalsdómnefnd valdi einn verðlaunahafa, en að auki hlutu sex þátttakendur sérstakar viðurkenningar. Sigurvegarinn er Kristinn Pálsson, átján ára Verslunarskólanemi með sögu sína Nonni og Konni. Þau sem fengu viðurkenningar eru: Arnfinnur Rúnar Sigmundsson (1992), Baldvin Einarsson (1985), Elísabet Rún Þorsteinsdóttir (1993), Sigríður Þóra Flygenring (1998), Sigurður Egill Sveinsson (1997) og Svanhildur Halla Haraldsdóttir (1992).Tæplega hundrað sögur bárust í keppnina, sem mun nú verða árlegur viðburður.
Sýning á verkunum sem bárust í keppnina var opnuð við sama tækifæri og er hún á bókatorginu á fyrstu hæð aðalsafns í Grófarhúsi. Dómnefnd skipuðu Björn Unnar Valsson fyrir hönd Borgarbókasafns, Halldór Baldursson teiknari og Inga María Brynjarsdóttir myndskreytir.