Nú fer hver að verða síðastur að sjá myndir á hinni vel heppnuðu þýsku barna- og fjölskyldumyndahátíð sem staðið hefur yfir að undanförnu í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Hátíðin var hluti af Barnamenningarhátíð í Reykjavík og barnabókmenntahátíðinni Mýrinni, og er í samvinnu við Goethe Institut.
Myndirnar sem eftir eru:
Flussfahrt mit Huhn. (Leikstjóri Arend Aghte. Vestur - Þýskaland, 1984. Litur, 100 mín.) Í stað þess að fara í sveit til afa inni í miðju landi halda frændsystkin í félagi við tvo stráka og kjúklinginn Gonzo í viðburðaríka leit að fljótaleið til Norðursjávar. Afi gamli hefur eftirför og lendir líka í ýmsum ævintýrum en að lokum...?Hen in a Boat. Four children and a chicken take off to discover the legendary north-east passage. They are pursued by a caring, adventurous grandfather across water, land and sky.Sýnd: Fimmtudaginn 29. apríl, kl. 13, 15 og 17.
Crazy. (Leikstjóri Hans-Christian Schmied. Þýskaland, 2000. Litur, 95 mín. Byggð á skáldsögu eftir Benjamin Lebert sem líka er meðhöfundur handrits. Margverðlaunuð unglingamynd, þar á meðal Bavarian Film Awards Best Young Actor, 2001 og silfurverðlaun á German Film Awards, 2001 sem Outstanding Feature Film.) Sextán ára strákur, lítillega fatlaður, kemur nýr inn í heimavistarskólann og gerir með því lokatilraun til að ná einkunnum sem duga eiga inn í framhaldskóla. Tekst honum að útskrifast og krækja í draumadísina eða skiptir kannski annað líka máli?Crazy. A sixteen-year-old with a slight physical disability is enrolled in boarding school by his parents – due, among other things, to his inadequate school performance.Sýnd: Föstudaginn 30. apríl, kl. 13, 15 og 17. Þessi mynd er síður við hæfi ungra barna
Das kleine Gespenst. (Leikstjóri Curt Linda. Þýskaland, 1992. Litur, 78 mín. Byggð á sögu eftir Otfried Preußler.) Teiknimynd um lítinn draug, uglu og mús.The Little Ghost.The little white ghost tells the wise owl of his desire to see the world just once in daylight. Sýnd: Sunnudaginn 2. maí, kl. 13 og 15.
Allar myndirnar eru sýndar með þýsku tali og enskum textum.
Kynntu þér hátíðina