Í Borgarbókasafni standa nú yfir tvær sýningar á vegum Listar án landamæra.
Annars vegar er það sýningin Dagur og nótt en á henni eru myndir sem urðu til í samvinnu barna frá frístundaheimilunum Guluhlíð og Sólbúum. Forvitnilegt er að skoða myndirnar þar sem hægt er að sjá túlkun barnanna á andstæðunum degi og nótt.
Hins vegar er það samsýning nemenda á starfsbraut í Fjölbrauskólanum í Garðabæ. Sýnd verða verk sem nemendurnir hafa unníð í vetur og má m.a. sjá myndbandsverk, klippimyndir, vírverk og grafík. Sýnendur eru: Aron Ragúel Guðjónsson, Egill Steinþórsson, Haraldur Jóhann Haraldsson, Hringur Úlfarsson, Jakob Alexander Aðils, Jóhann Theodór Þórðarson, Jónatan Nói Snorrason og Tara Þöll Danielsen. Kennari þeirra er Sari Maarit Cedergren.
Sýningarnar standa til 22. maí.
Meira um List án landamæra
Myndir eftir nemendur á starfsbraug í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ