Aprílgetraunin tengdist fjórum hryngeirameðlimum fjögurra rokk- og poppsveita sem áttu sín blómaskeið á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Um var að ræða tvo karlmenn og eina konu af amerísku bergi brotin og einn Íslending af dönskum ættum. Auk þess að gefa taktinn voru þau þó einkum fræg fyrir söng og röddun í mörgum af frægustu smellum sinna sveita. Spurt var um nöfn þessara einstaklinga og nöfn á hljómsveitum þeirra. Nóg var að nefna 3 hljómsveitir eða 3 nöfn.
Rétt svör eru: Levon Helm, bandarískur trommuleikari og söngvari kanadísku sveitarinnar The Band, sem m.a. er fræg fyrir að hafa leikið undir hjá Bob Dylan í hans fyrstu hljómleikaferðum með rafmagnshljóðfæri og fyrir frægan lokakonsert frá 1976 The Last waltz sem Martin Scorsese sá um að kvikmynda.Don Henley, bandarískur trommuelikari sveitarinnar The Eagles, hvers frægasti smellur er Hotel California.Engilbert Jense, n íslenskur trommuleikari af dönskum ættum (sumir segja færeyskum líka) sem sló í gegn með hljómsveitinni Hljómar og söng m.a. lagið Sveitapiltsins draumur sem var staðfærður texti lagsins California dreaming sem hin þéttvaxna Mama Cash hafði áður sungið með söngkvartettinum The mamas and the papas. Hann hefur einnig lengi verið frægur sem einn fremsti flughnýtingamaður landsins.Karen Carpenter sem ásamt bróður sínum Richard áttu marga smelli undir nafninu The Carpenters áður en hún lést tæplega 33 ára gömul úr afleiðingum átröskunar.
S. Andrea Ásgeirsdóttir var dregin úr hópi þeirra sem skiluðu inn réttum svörum og hlýtur hún gjafakort fyrir nýju skírteini eða endurnýjun á því gamla á Borgarbókasafn.