Fréttayfirlit

Getraun maímánaðar

Getraunin tengist að þessu sinni  tómstundum sumra í sumar, það er að segja knattspyrnuglápi, glæpasagnalestri og tónlistarhlustun.

Spurt er um frægan knattspyrnumann, glæpasagnapersónu og nafn á fornfrægri hljómsveit sem hóf feril sinn í reykvískum menntaskóla.

Knattspyrnuhetjan er af mörgum talinn einn besti markvörður sögunnar og átti stóran þátt í velgengi sinnar þjóðar þegar hún vann sinn eina heimsmeistaratitil á heimavelli á síðari hluta síðustu aldar. Hann lék lengstum eftir það með félagsliði sem löngu síðar tengdist íslenskum fjárfestum.

Glæpasagnapersónan er fremur lágvaxinn fráskilinn lögreglumaður, sem fluttist frá London og leysir nú flest sín mál í Jórvíkurskíri. Hann á son sem spilar í hljómsveit og hefur sjálfur mikinn áhuga á tónlist. Hann kunni forðum gott maltviskí að meta en tengir nú keim þess einkum við reyk af húsbruna þar sem hann missti allt sitt þótt bruninn sá hefði í sjálfu sér ekkert með þann görótta drykk að gera.

Eftirnafn beggja er hið sama og tengist ákveðnum fjármálstofnunum sem mikið hefur verið fjallað um að undanförnu. Fornafn knattspyrnukappans er nánast hið sama og frægs vörumerkis sterkrar áfengistegundar sem sumir tengja sumri og sól og margir telja þjóðardrykk Englendinga. Fornafn lögreglumannsins tónelska er hið sama og titill á angurværu lagi síðar frægs kvikmyndaleikstjóra og meðlims vinsællar reykvískrar sveitar frá áttunda áratug síðustu aldar. Sveitin sú hóf feril sinn í virðulegum menntaskóla hér í bæ og ber sama nafn og einn af vitringunum forðum. Hún snéri  til baka á síðasta ári með útkomu disks sem vakti talsverða athygli.

Spurt er
1. Hvað heitir markmaðurinn snjalli?
2. Hvað heitir lögreglumaðurinn tónelski?
og
3.  Hvað heitir hljómsveitin fornfræga sem gaf út disk á síðasta ári.

Nægjanlegt er að svara tveimur af þessum spurningum.

Sendið svör til: gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is

Dregið verður úr réttum lausnum í lok mánaðarins. Verðlaunin eru sem fyrr, gjafakort fyrir nýju skírteini eða endurnýjun á því gamla á Borgarbókasafni.


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�