Fréttayfirlit

Æringi, Sóla, Krummi og Æringjasögur á Barnamenningarhátíð

Sögubíllinn Æringi og Sóla tóku virkan þátt í Barnamenningarhátiðinni og fengu til liðs við sig góðan gest, hann Krumma. Það var vel við, hæfi þar sem krummi er forvitinn fugl og yfirskrift hátíðarinnar var forvitni. Æringi og Sóla voru  við Ævintýrahöllina, Fríkirkjuvegi 11, og sagði Sóla börnunum sögur í bílnum og í Ævintýrahöllinni sjálfri. Öðruhverju kom Krummi í heimsókn og spjallaði við börnin. Einnig var boðið upp á leiksýningar með Sólu og Krumma.

Frá því um áramót hafa börnin sem koma í heimsókn í Æringja ekki bara hlustað á sögu heldur hefur hver hópur samið eina sögu í sameiningu. Á Barnamenningarhátíð mátti nú sjá afrakstur þeirrar vinnu á greinum trjánna við Ævintýrahöllina.

Vikuna fyrir Barnamenningarhátíð fór  Æringi í heimsókn á fjóra leikskóla. Sóla sagði sögur af krumma og fræddi  börnin um hætti hrafnsins og söng með þeim ýmis krummalög. Leikskólarnir unnu svo áfram með krummaþemað og voru ýmis listaverk búin til. Hluti þeirra var settur upp í Ævintýrahöllinni.

Sóla sögukona og sögustund
Sóla og Krummi segja börnunum sögur á leikskólanum Mýri


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�