Fréttayfirlit

Þorgrímur Þráinsson heimsækir Snædísi Barkardóttur

Heimsóknin er hluti af viðurkenningu sem Snædís fékk þegar nafn hennar var dregið úr nöfnum þeirra sem tóku þátt í að velja bestu bók síðasta árs í Bókaverðlaunum barnanna. Þorgrímur sagði krökkunum, sem eru í 7. bekk, frá bók sem hann er með í smíðum. Líflegar umræður spunnust um bækur, hvernig þær ættu að vera og hvernig þær ættu að enda. Það var líka greinilegt að krakkarnir höfðu lesið bækur Þorgríms og að þær og hann sjálfur nytu mikilla vinsælda. Bókin kemur til með að fjalla um sömu krakka og voru í verðlaunabók hans Núll núll 9.

Þorgrímur Þráinsson
Þorgrímur og nemendur spjalla um bækur

Þorgrímur Þráinsson og Snædís Barkardóttir
Þorgrímur og Snædís


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�