Atvinnulausir og þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg fá nú frítt skírteini á Borgarbókasafni. Skírteinið gildir til 31.12. 2010. Atvinnulausir þurfa að framvísa staðfestingu frá Vinnumiðlun (Engjateigi 11) eða frá þjónustumiðstöð í sínu hverfi. Þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð framvísa staðfestingu frá þjónustumiðstöð í sínu hverfi.
Athugið að einungis þeir sem eiga lögheimili í Reykjavík eiga kost á fríu skírteini.