Fréttayfirlit

Allar heimsins konur í Viðey

Söguhringur kvenna rak endahnútinn á vetrarstarfið með ferð í Viðey sunnudaginn, 30. maí. Fjöldi kvenna og barna tók þátt í ánægjulegum degi í eyjunni þar sem var grillað, borðað, leikið, skoðað, slappað af og skemmt sér. Konurnar, sem allar eru búsettar á Íslandi, koma víða að og er ólíklegt að svo mörg tungumál hafi heyrst í Viðey á einum og sama deginum. Þau sem m.a. mátti heyra voru úrdú, spænska, franska, rússneska, pólska, enska, hollenska og þýska og svo mættist allur hópurinn í íslenskunni.

Markmiðið með Söguhring kvenna er að konur, sem hafa áhuga á frjálslegri samveru sem byggir meðal annars á því að deila menningarlegum bakgrunni sínum með öðrum, geti hist, spjallað og tekið þátt í skapandi starfi saman. Í Söguhringnum gefst konum af erlendum uppruna einnig tækifæri til að tjá sig á íslensku, æfa tungumálið og fræðast um íslenska menningu, bókmenntir og siði.

Söguhringur kvenna er eitt af fjölmenningarlegum verkefnum Borgarbókasafns og er unnið í samstarfi við Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Allar konur eru velkomnar.

Söguhringurinn fer nú í sumarfrí en tekur aftur upp þráðinn síðla í ágúst.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um starfsemina á heimasíðu Borgarbókasafns

Ef þú vilt skrá þig á póstlista Söguhringsins, sendu póst á kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is eða paola@redcross.is.

Söguhringur kvenna í Viðey

Söguhringur kvenna í Viðey

Söguhringur kvenna í Viðey


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�