Borgarbókasafn, Listasafn, Ljósmyndasafn og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur á fimmtudagskvöldum í sumar. Lagt er af stað í göngurnar kl. 20. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.
Dagskrá til útprentunar (pdf 0,68 mb, opnast í nýjum glugga)
3. júní Minjasafn Reykjavíkur – MiðbæjarkirkjurnarHelga Maureen Gylfadóttir sagnfræðingur leiðir göngu um hinar sögulegu kirkjur í og við Kvosina. Lagt er upp frá Grófarhúsi.10. júní Borgarbókasafn Reykjavíkur – MararþaraborgHafnarganga frá miðbakka. Lagt er upp frá Grófarhúsi og gengið í átt að Granda og lesinn skáldskapur um hafið, höfnina og skipin – og jafnvel sjómennina. Leiðsögukona er Úlfhildur Dagsdóttir.24. júní Ljósmyndasafn Reykjavíkur - Smáíbúðahverfið – sjálfsbjargarstefna í húsnæðismálumSara Valdimarsdóttir kennari rekur sögu og þróun hverfisins. Gangan hefst við hús nr. 69 við Sogaveg (miðja vegu á milli Grensásvegar og Réttarholtsvegar).1. júlí Listasafn Reykjavíkur – Útilistaverk borgarinnarSigurlaug Ragnarsdóttir listfræðingur og menningarmiðlari leiðir göngu þar sem útlistverk borgarinnar verða skoðuð út frá hugmyndafræðilegum grundvelli og þannig dregnar fram nýjar áherslur. Upphaf göngunnar verður Miðja Reykjavíkur við vesturgafl Fálkahússins.8. júlí Reykjavík Safarí – Í boði allra safnannaMenningarlífið í miðborginni kynnt fyrir fólki sem hefur flust til Íslands eða sækir landið heim. Hvar eru leikhúsin, frægar styttur og skemmtilegir staðir? Hvað er ókeypis? Hvað gerist um helgar? Hvað er fyrir börn,fjölskyldur og fullorðna? Á spænsku, pólsku, ensku og tælensku. Lagt er upp frá Grófarhúsi.15. júlí Minjasafn Reykjavíkur – Hernám ReykjavíkurGuðbrandur Benediktsson sagnfræðingur fer á slóðir breskra hernámsmanna og segir frá atburðum sem áttu sér stað á fyrstu vikum hernáms Reykjavíkur. Lagt er upp frá Grófarhúsi.22. júlí Ljósmyndasafn Reykjavíkur - Gengið um gamla Laugarneshverfið Gengið verður eftir gamla Laugarnesveginum og Sundlaugarvegi með Þorgrími Gestssyni, blaðamanni og höfundi bókarinnar Mannlíf við Sund, sem rifjar upp sögu hverfisins. Lagt verður af stað frá bæjarhólnum í Laugarnesisem er milli Sæbrautar og Listasafns Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga.29. júlí Borgarbókasafn Reykjavíkur – Hús skáldannaÍ göngunni verður Vogahverfið kynnt sem heimaslóðir skálda, en fjölmörg þeirra hafa búið og búa enn í hverfinu. Leiðsögumaður er Arngrímur Vídalín. Lagt upp frá Sólheimasafni.5. ágúst Listasafn Reykjavíkur – GötulistMyndlistamaðurinn Sara Riel leiðir göngu þar sem borgarmyndin verður skoðuð út frá hugmyndum um Urban art eða götulist. Upphafsstaður göngunnar verður Hjartatorg milli Hverfisgötu, Klapparstígs og Laugavegar.12. ágúst Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns: Pöbbaganga í miðbænumNæturlífið hefur löngum verið helsta stundargaman Reykvíkinga, enda blómstra veitingastaðir í borginni sem aldrei fyrr. Sumir þeirra eiga sér langa og skrautlega sögu, aðrir hafa orðið að miðstöð menningarvita. Lagt er upp frá Grófarhúsi.