Í ár eru tíu glæpasögur tilnefndar til Blóðdropans, verðlauna Hins íslenska glæpafélags. Blóðdropinn verður afhentur í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, föstudaginn 18. júní kl. 17:00. Allir eru velkomnir.
Tilefndar bækur eru:
Fimmta barnið eftir Eyrúnu Ýr TryggvadótturFölsk nóta eftir Ragnar JónassonHorfðu á mig eftir Yrsu SigurðardótturHyldýpi eftir Stefán MánaNektarmyndin eftir Helga JónssonRúnagaldur eftir Elías Snæland JónssonSólstjakar eftir Viktor Arnar IngólfssonSpor eftir Lilju SigurðardótturSvörtuloft eftir Arnald IndriðasonÞegar kóngur kom eftir Helga Ingólfsson
Þetta er í fjórða skiptið sem Blóðdropinn er veittur. Ævar Örn Jósepsson hlaut verðlaunin árið 2009 fyrir Land tækifæranna, Arnaldur Indriðason 2008 fyrir Harðskafa og Stefán Máni 2007 fyrir Skipið.
Handhafi Blóðdropans verður fulltrúi Íslands í samkeppninni um Glerlykilinn 2011, norrænu glæpasagnaverðlaunin.