Um eitthundrað innflytjendur af ólíkum uppruna og nokkrir innfæddir Íslendingar tóku þátt í menningargöngunni Reykjavík safarí sem fór fram í Reykjavík á dögunum. Þar gat fólk valið milli leiðsagnar á ensku, spænsku, tælensku, litháísku og pólsku en allir hóparnir fræddust um menningu og sögu miðborgarinnar. Söfnin í miðbænum voru kynnt ásamt markverðum stöðum og stofnunum á borð við Austurvöll, Alþingi, Aðalstræti, Þjóðmenningarhús og Þjóðleikhús. Í lokin áttu hóparnir góða stund saman í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi þar sem dansarinn Etna Lupita Mastache frá Mexíkó leiddi fjölþjóðlegan dans, við mikinn fögnuð gesta.
Viðbrögð gestanna voru mjög jákvæð og sagðist fólk vera margs vísari um það sem í boði er og hugðist nýta sér það í framtíðinni. Sú hugmynd hefur komið upp að ganga af þessu tagi verði hluti af íslenskunámskeiðum fyrir erlenda borgarbúa og í slíkum tilfellum fari hún fram á íslensku, með það í huga að gestirnir séu byrjendur í málinu. Reykjavík safarí er í boði Borgarbókasafns, Listasafns, Ljósmyndasafns og Minjasafns Reykjavíkur og er hluti af göngudagskránni Kvöldgöngur úr hverfunum sem fer fram á fimmtudagskvöldum yfir sumarmánuðina. Hún er einnig hluti af fjölmenningarstarfi Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Dagskrá og frekari upplýsingar um Kvöldgöngur í hverfunum.