Fréttayfirlit

Söngdagskrá fyrir börn í aðalsafni

Laugardaginn 24. júlí kl. 14 mun söngkonan Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir syngja fyrir börn í aðalsafni Borgarbókasafns í Tryggvagötu.

Hjálmfríður Þöll hefur nýlega sent frá sér geisladiskinn Sofðu rótt þar sem hún syngur vögguvísur án undirleiks, rétt eins og móðir sem syngur fyrir barnið sitt á kvöldin. Diskurinn inniheldur 27 velþekktar íslenskar og þýddar vögguvísur, svo sem Sofðu rótt, Bí bí og blaka, Sofðu unga ástin mín, Bíum bíum bambaló, Erla góða Erla, Hættu að gráta hringaná og fleiri. Allur ágóði af sölu disksins fram til 1. ágúst rennur til Umhyggju, styrktarsjóðs langveikra barna, og hluti ágóðans eftir það.

Þöll stundaði tónlistarnám á Hvolsvelli og í Reykjavík, meðal annars við Tónlistarskóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla F.Í.H. Samhliða náminu söng hún djasstónlist við undirleik föður síns, Friðriks Guðna Þorleifssonar, á hótelum og veitingastöðum, söng með ýmsum hljómsveitum og tók þátt í Elvis sýningu á Hótel Sögu. Hún hefur búið í Danmörku frá 1996 og kennir nú djass-, popp- og rokksöng við Tónlistarskólann í Næstved á Sjálandi jafnframt því að kenna eins til átta ára börnum tónlist, söng og hreyfingu.

Þöll mun syngja fyrir börn og fylgdarmenn þeirra á fyrstu hæðinni í Grófarhúsi og eru allir hjartanlega velkomnir.

Senda á Facebook
Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�