Fréttayfirlit
Æringi, Sóla og Krummi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag, 26.- 28. júlí, verður sögubíllinn Æringi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Sóla sögukona segir börnunum sögur í bílnum og hver veit nema Krummi komi líka í heimsókn. Hann væri þá vís með að stríða dýrunum í garðinum.
Sóla segir söguna af Músa litla og ýmsar sögur af sjálfri sér og Krumma.
Tvær sögustundir verða hvern dag, kl 14.00 og 15.00. Bíllinn verður staðsettur við hólinn rétt hjá Víkingaskipinu í Fjölskyldugarðinum.
Sögubíllinn Æringi er rekinn af Borgarbókasafninu og keyrir um og býður börnum að hlusta á sögur. Umsjónarmaður sögubílsins er Ólöf Sverrisdóttir en hún kemur fram í gervi Sólu sögukonu við hin ýmsu tækifæri.
Senda á Facebook Til baka