Sólheimasafn Borgarbókasafns býður til bókmenntagöngu í nágrenni safnsins fimmtudagskvöldið 29. júlí. Í göngunni verða Vogar og Heimar kynntir sem heimaslóðir skálda, en fjölmörg þeirra hafa búið í hverfinu og það hefur einnig verið vettvangur skáldskapar af ýmsu tagi. Langholtshverfið var lengi vel helsta úthverfi bæjarins, en þar hófst byggð um 1940. Út frá því mynduðust svo Vogar og Heimar á síðari hluta fimmta áratugarins og var hverfið í byggingu fram á þann sjöunda. Sólheimablokkirnar, sem standa við hlið Sólheimasafns voru helstu háhýsi borgarinnar á sínum tíma og koma þær meðal annars við sögu í skálskap eins fyrrverandi íbúa hverfisins, Einars Más Guðmundssonar. Aðrir höfundar sem koma við sögu í göngunni ólust ýmist upp í hverfinu líkt og hann eða fluttu þangað síðar á ævinni, sumir hafa búið þar í áratugi og aðrir eru nýbúar.
Arngrímur Vídalín og Þórhallur Þórhallsson leiða gesti um heimaslóðir skáldanna og lesið verður úr verkum þeirra á völdum stöðum. Lagt verður af stað frá Sólheimasafni, Sólheimum 27, kl. 20 og tekur dagskráin um klukkustund. Gangan er hluti af göngudagskránni Kvöldgöngur í hverfunum sem Borgarbókasafn, Listasafn, Ljósmyndasafn og Minjasafn Reykjavíkur standa fyrir á fimmtudagskvöldum á sumrin.