Síðasta kvöldganga sumarsins er fimmtudaginn 12. ágúst og er hún í boði allra safnanna sem standa fyrir göngunum. Í göngunni verður næturlíf miðbæjarins tekið fyrir en það hefur löngum verið helsta stundargaman Reykvíkinga, enda blómstra veitingastaðir í borginni sem aldrei fyrr. Sumir þeirra eiga sér langa og skrautlega sögu, aðrir hafa orðið að miðstöð menningarvita.
Lagt er upp frá Grófarhúsi kl. 20.00. Allir velkomnir.Ljósmyndari: Andrés Kolbeinsson Expressókaffi, kaffihús í kjallara Uppsala Aðalstræti 18 á horni Túngötu og Aðalstræti, opnað 1959.
"Expressókaffi í kjallara Uppsala. í dag verður opnuð ný kaffistofa, Expressókaffi, í kjallaranum á Uppsölum — Aðalstræti 18. Kaffið er þarna lagað eftir ítalskri aðferð með gufupressun og á að vera mjög sterkt og hressandi. Borð og sæti eru þarna fyrir 16 manns en auk þess eru borð til að standa við, svo hægt á að vera að afgreiða 20—30 manns í einu. Er þetta fyrirkomulag hagkvæmt fyrir þá sem þurfa að flýta sér, en vilja gjarna fá góðan kaffisopa.“ Þjóðviljinn 9. janúar 1958 bls 3