Menningarnóttin 2010 markar tíu ára dvöl aðalsafns Borgarbókasafns í Grófarhúsi. Í tilefni þess voru nokkur dagskráratriði sérstaklega helguð húsinu sjálfu og starfssemi þess og svo hinu frábæra og fjölhæfileikaríka starfsfólki Borgarbókasafnsins.
Áherslan var lögð á ljóð, en fjöldi ljóðskálda starfar og hefur starfað hjá Borgarbókasafninu í gegnum tíðina. Farið var með krakkakvæði fyrr um daginn og í eftirmiðdaginn lagði lítill úrvalshópur upp í ljóðagöngu um húsið, en þar las starfsfólk ljóð fyrir gesti, bæði frumsamin og eftir önnur skáld. Einnig komu utanaðkomandi skáld í heimsókn og lásu. Ljóðagöngunni lauk síðan með Greitt til hliðar + tveir, sigurvegurum í Ljóðaslammi Borgarbókasafns 2010.
Dagskránni lauk svo með afar fjölsóttum ljóðatónleikum sem báru yfirskriftina Kónguló á háum hælum. Þar flutti Magga stína og Tríó Eðvarðs Lárussonar tónlist Ingva Þórs Kormákssonar, starfsmanns Borgarbókasafns, við ljóð ýmissa skálda, þar á meðal nokkur skáld sem starfa eða hafa starfað hjá safninu.
Auk þessa opnuðu tvær myndlistasýningar, annarsvegar sýning á verkum Daða Guðbjörnssonar á Reykjavíkurtorgi og hinsvegar einskonar bókverkssýning, eða bók í brotum eftir Birnu Bjarnadóttur.
Að vanda var fjölmennt í húsinu allan daginn og fólk á öllum aldri nýtti sér það sem var í boði í húsinu, auk þess sem safnið er sem fyrr vinsæll hvíldarstaður fyrir lúna hátíðagesti.