Nú er Söguhringur kvenna kominn úr sumarfríi og verður fyrsti söguhringur haustsins sunnudaginn 5. september á 6. hæð í aðalsafni, Tryggvagötu 15, kl. 15.00.
Allar konur eru velkomnar, heitt á könnunni, bækur og leikföng fyrir börnin.
Söguhringurinn er samstarfsverkefni bókasafnsins og Samtaka kvenna af erlendum uppruna og er markmið hans að skapa vettvang þar sem konur skiptast á sögum, persónulegum eða bókmenntalegum. Hann er ætlaður konum sem hafa áhuga á frjálslegri samveru sem byggir meðal annars á því að konur deila menningarlegum bakgrunni sínum með öðrum. Í söguhringnum gefst konum af erlendum uppruna einnig tækifæri til að tjá sig á íslensku, æfa tungumálið og fræðast um íslenska menningu, bókmenntir og siði.
Meira um Söguhringinn