Miðvikudaginn 1. september var opnuð sýning í Foldasafni. Þar eru sýnd verk eftir börn á Stórakoti, sem er í leikskólanum Fossakoti. Þetta er fyrsta sýningin af mörgum, en í vetur munu börnin í leikskólum Grafarvogs sýna myndir sínar í barnadeildinni. Sýningin stendur út september og þá tekur sýning næstu leikskóladeildar við.