Sóla sögukona og sögubílinn Æringi verða á hverfahátíð Miðborgar og Hlíða á Klambratúni, laugardaginn 4. september. Þar ætlar Sóla að vera með nokkrar sögustundir og hefst sú fyrsta kl 13.30.
Sóla ætlar einnig að kynna barnabækur á erlendum tungumálum og ef einhvern langar að lesa þær fyrir börnin má hann það. Sóla ætlar hinsvegar að segja sögur á íslensku og verður allavega með þrjár sögustundir.Æringi og Sóla hafa verið dugleg að bjóða börnum uppá sögustundir og fjöldi manns kom að hlýða á sögustundirnar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í sumar. Núna er Æringi farinn af stað á leikskóla og frístundaheimili en í þeim sögustundum semja börnin sjálf einnig sögur og úrval af þeim birtist á barnasíðu Borgarbókasafnsins