Borgarbókasafnið samanstendur af sjö söfnum, aðalsafni og sex hverfissöfnum. Þess utan er bókabíllin Höfðingi sem hefur yfir fjörutíu viðkomustaði og sögubíllinn Æringi sem heimsækir skóla, frístundaheimili, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, hverfahátíðir og aðra viðburði í borginni. Safnið býður upp á heimsendingaþjónusta til aldraðra og fatlaðra og koffort, farandbókasöfn í leikskóla.
Bókasafn eða viðkomustaður bókabíls er alltaf innan eins kílómetra göngufæris.