Leshringurinn
Fámennt en góðmennt var í leshringnum á fyrsta fundi eftir páska,
söknuðum samt hinna góðmennanna okkar sem ekki voru á staðnum.
Allir voru heillaðir af Náunginn í næstu gröf og við erum að spá í
að horfa á hana saman þegar við erum búin að hafa upp á myndinni
sem heitir Grabben i graven brevid eða Fyren i nabograven.
Þórgunnur las upp nokkrar skemmtilegar sögur úr
Kuðungasafninu eftir Óskar Árna Óskarsson.
Rætt var um vorferð eða vorfagnað af einhverju tagi – hugmyndir óskast.
Lestur fyrir næsta hring er: Sumarið án karlmanna eftir
Siri Hustvedt og Mynd af ósýnilegum manni sem er ævisaga eftir
manninn hennar Paul Auster. Bæði eru frægir bandarískir
samtímahöfundar og við eigum fleiri bækur eftir Auster á íslensku.
Hittumst næst miðvikudaginn 8. maí kl.16:15.
Leshringurinn
Leshringurinn hittist 2. miðvikudaginn í mars viku seinna vegna óveðursins
sem geisaði síðastliðinn miðvikudag. Umræður voru fjörugar um bækurnar
og Þórgunnur og Katrín lásu upp úr ljóðaþýðingunum hans Gyrðis.
Jónína las ljóðin sín úr Tímariti Máls og Menningar sem er nýútkomið
við góðar undirtektir.
Fyrir næsta fund sem verður miðvikudaginn 3. apríl kl. 16:15
ætlum við að lesa bókina Náunginn í næstu gröf
eftir Katarina Mazetti og Kuðungasafnið eftir Óskar Árna Óskarsson.
Leshringurinn hittist að venju í „sælusófahorninu“ í Ársafni.
Ræddum bækurnar: Gæludýrin eftir Braga Ólafsson
og ljóðabókina Sjálfsmyndir eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Við ræddum líka fleiri bækur sem við höfum lesið og
kennir þar ýmissa grasa.
Lestur þessa mánaðar: Prýðisland eftir Grace McCleen
og Að snúa aftur sem eru ljóðaþýðingar eftir Gyrði Elíasson.

Gleðilegt ár!
Leshópurinn kom saman í fyrsta skipti á nýju ári
miðvikudaginn 9. janúar, þar sem hópurinn
„bar saman bækur sínar“ um jólalesturinn.
Umræður voru fjörugar að vanda og mikið
hafði verið lesið yfir hátíðarnar, bæði innanlands
og utan - og jafnvel uppi í háloftunum.
Einn félagi leshringsins Þórgunnur Þórarinsdóttir
orti limru sem hún fór með fyrir okkur og hér fer á eftir:
Blindur er bóklausmaður
Bókasafnið er staður
sem gott er að mætast
með bækur og kætast
menningin er ekkert blaður.
Næst hittist leshringurinn miðvikudaginn 6. febrúar kl. 16:15.
Bækurnar sem við ætlum að lesa eru Gæludýrin eftir Braga Ólafsson og glæný ljóðabók
Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar, Sjálfsmyndir.
Leshópurinn hittist aftur miðvikudaginn 9. janúar kl. 16:15.
Í blessaðri nýárssólinni ætlum við að segja frá og ræða
jólabókalesturinn okkar.

Aðventustemning réði ríkjum í leshringnum 5. desember
yfir smákökum, konfekti og jólaglöggi. Mikil umræða
skapaðist um bók Herdísar Helgadóttur
Úr fjötrum og fannst fólki hún varpa nýju ljósi á stöðu kvenna
fyrir og í hernáminu. Ljóðabók Vilborgar Dagbjartsdóttur,
Fiskar hafa enga rödd, höfðaði vel til flestra og lesin voru
upp sérvalin ljóð. Enduðum á samkvæmisleik; bentum
blindandi á texta úr bókinni Perlur úr skáldskap Laxness.
Hver las upp sinn texta - og það var mikið hlegið.


Leshringurinn hittist næst miðvikudaginn 5. desember kl. 16:15. Við ætlum að lesa bækurnar
Úr fjötrum eftir Herdísi Helgadóttur og ljóðabókina Fiskar hafa enga rödd eftir
Vilborgu Dagbjartsdóttur.
Jórunn Sigurðardóttir kom í heimsókn í leshópinn 7. nóv.
og afraksturinn verður í þætti hennar Orð um bækur á Rás1 nk. sunnudag 11. nóvember kl. 15.
http://www.ruv.is/sarpurinn/ord-um-baekur/11112012-0
Leshringurinn hittist næst miðvikudaginn 7. nóvember klukkan 16:15.
Lesefni: Hvernig ég kynntist fiskunum eftir Otav Pavel.
Öskudagar, ljóðabók eftir Ara Jónsson
Haustfagnaður leshringsins miðvikudaginn 19. september
Leshringurinn fór í Bíó Paradís og sá verðlaunamyndina Skilnaður.
Óhætt er að mæla með þessari frábæru mynd sem vakti upp margar
spurningar m.a. um hegðun og forgangsröðun í lífinu fyrir utan
ólíkt samfélag með framandi siðum.
Á eftir fengum við okkur að borða af kúfuðu allsnægtaborði á Gandhi
sem er indverskur veitingastaður bak við dómkirkjuna,
spjölluðum og nutum samverunnar!
Út í kvöldið gengum við svo kátar og blindfullar - af bergvatninu frá Gvendi.
http://bioparadis.is/2012/09/01/a-separation-skilnadur/
Leshringurinn hittist næst miðvikudaginn 3. október klukkan 16:15.
Lesefni: Vögguvísa eftir Elías Mar og örsögurnar Lukkunnar pamfíll, höfundur Ari Behn.
Haustfagnaður leshringsins verður miðvikudaginn 19. september.
Þá förum við í Bíó Paradís og sjáum Írönsku verðlaunamyndina Skilnaður.
Á eftir fáum við okkur að borða og spjalla á
veitingastaðnum Gandhi í Pósthússtræti.
Arndís okkar sá dagskrána.
Hittumst í bíó og svo í leshring í október!
Leshringurinn á stjá.
Það var góð mæting og skemmtilegur fundur. Skiptar skoðanir um heimalesturinn,
sérstaklega Ósýnilegu konuna. Talað var um annann lestur sumarsins.
Fyrir næsta fund ætlum við að lesa ljóðabókina Ég stytti mér leið framhjá dauðanum
eftir Einar Má Guðmundsson og bókina Hin ótrúlega pílagrímsganga Harolds Fry
eftir Racel Joyce í þýðingu Ingunnar Snædal.
Næst hittumst við miðvikudaginn 5. september kl. 16:15.
Formaður haustfagnaðar leshringsins er Arndís. Ákveðið var að hafa einn karlmann
í nefndinni og eftir miklar vangaveltur varð Hinrik fyrir valinu.
Sú hugmynd kom upp að allir leshringirnir héldu sameiginlegan haustfagnað.
Leshringurinn er farinn í sumarfrí.
NÆSTI FUNDUR:
Við byrjum aftur miðvikudaginn 1. ágúst kl. 16:15.
LESEFNI:
Skáldsagan sem við lesum er Ósýnilega konan eftir Sigurð Guðmundsson (myndlistamann og rithöfund).
Ljóðabókin sem við ætlum að lesa er glæný og heitir Hér vex enginn sítrónuviður eftir Gyrði Elíasson.
Á Bókmenntavefnum má sjá umsögn um bókina sem gaman væri að lesa áður eða eftir að ljóðin eru lesin:
http://bokmenntir.is/desktopdefault.aspx/tabid-3967/5648_read-31375/
Leshringurinn í Ársafni
Leshringurinn í Ársafni hittist næst fimmtudaginn 14. Júní kl. 16:15
(ath. breyttan tíma). Við ætlum að lesa bókina Grasið syngur eftir
Doris Lessing og ljóðabókina Ísfrétt eftir Gerði Kristnýju.
Maí - leshringur í Ársafni
Leshringurinn hittist næstkomandi miðvikudag 2. maí klukkan 16:45.
Bækurnar sem við ætlum að ræða eru Skuggamyndir úr ferðalagi eftir
Óskar Árna Óskarsson
og ljóðabókin Lúðrasveit Ellu Stínu eftir Elísabetu Jökulsdóttur.
Leshringurinn varð eins árs í mars og hefur verið virkur allt árið,
ekki tekið sumarfí!
Bækurnar sem við höfum verið að lesa og ræða frá áramótum eru:
Bókaránið mikla, Rennur upp um nótt/ljóð,
Allt með kossi vekur, Skrælingjasýningin/ljóð,
Fásinna og Textar Megasar.
