Föstudaginn 29. apríl opnaði sýning á bókatorgi aðalsafns, Tryggvagötu 15. Sýndar eru Æringjasögur og myndskreytingar við þær. Sýningin er afrakstur samstarfs leik- og grunnskólabarna í Reykjavík, sögubílsins Æringja og Borgarbókasafns. Allir velkomnir.
Sögubíllinn Æringi heimsækir leikskóla og frístundaheimili í Reykjavík og býður börnunum í sögustund.
Árið 2010 fékk verkefnastjóri sögubílsins, Ólöf Sverrisdóttir, þá hugmynd að fá börnin í lið með sér og semja sögur í bílnum. Það gekk líka svona ljómandi vel og margar þrælskemmtilegar sögur urðu til sem kallaðar eru Æringjasögur. Ákveðið var að velja nokkrar verðlaunasögur eftir hvern mánuð og setja á heimasíðu safnsins.
Eftir árið var ákveðið að leita samstarfs við grunnskólana í þeim hverfum sem leikskólarnir, sem áttu verðlaunasögur, voru í með það í huga að fá unglinga til að myndskreyta sögurnar. Nokkrir skólar tóku vel í þessa hugmynd og má sjá á sýningunni afrakstur þessarar samvinnu barna, unglinga, leikskóla, grunnskóla, Æringja og Borgarbókasafnsins.
Sögurnar sem eru á sýningunni eru eftir börn á leikskólunum Brekkuborg, Foldaborg, Geislabaug, Grænuborg, Kvarnaborg, Laufásborg, Maríuborg, Mýri, Sjónarhóli, Sólstöfum og Sæborg og í frístundaheimilunum Draumalandi og Regnbogalandi og skólaseli Ártúnsskóla.
Unglingar úr Austurbæjarskóla, Ártúnsskóla, Foldaskóla, Hagaskóla, Húsaskóla og Ingunnarskóla myndskreyttu sögurnar.
Nánari útlistun á samvinnunni:
Hagaskóli teiknaði myndir við sögur frá leikskólunum Sæborg og Mýri
Austurbæjarskóli teiknaði myndir við sögur frá Grænuborg, Laufásborg, Sólstöfum og Draumalandi Austurbæjarskóla
Foldaskóli teiknaði myndir við sögur frá leikskólanum Foldaborg og frístundaheimilinu Regnbogalandi
Húsaskóli teiknaði myndir við sögur frá leikskólunum Brekkuborg og Sjónarhóli
Ingunnarskóli sem teiknaði myndir við sögur frá Maríuborg og frá Geislabaug
Ártúnsskóli teiknaði myndir við sögur frá Kvarnaborg og skólaseli Ártúnsskóla


Sýnishorn af þeim myndum sem prýða sýninguna