Í tilefni árstímans er hér ein lauflétt vorgetraun. Spurt er um þrjú ljóð sem tengjast vorinu:Í því fyrsta segir af gáskafullum förum vinda og vatnsfalla á meðan hin tvö fjalla um vorið frá sjónarhóli tveggja ungra manna. Annar þeirra ráfar ástsjúkur um Vesturbæinn á fjórða áratug síðustu aldar og fylgist með hvernig gluggatjöldin bærast á heimili elskunnar hans. Hinn hvílir helsjúkur á sjúkrabeði í upphafi sömu aldar og biður vorið um að vera ekki lengur í felum heldur að gægjast nú til sín inn um gluggann. Texti fyrstnefnda ljóðsins fellur að norrænu þjóðlagi og við annað þeirra samdi þekkt vísnasöngkona hugljúft lag sem fyrst varð þekkt í flutningisunnlensks dægurlagasöngvara og er nú nýkomið út á afmælissafnplötu annars og ekki síður þjóðþekkts söngvara og söngvaskálds.
Spurt er:1. Hvað heitir fyrsta ljóðið sem um er getið?2. Hverjir eru höfundar hinna tveggja?og3. Hvert er sviðsnafn söngvarans góðkunna sem heldur nú uppá merkisafmæli sitt?
Dregið verður úr réttum svörum föstudaginn 13. maí. Í verðlaun er gjafakort fyrir nýju skírteini á Borgarbókasafni eða endurnýjun á því gamla. Sendið svör á gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is