Laugardaginn 14. maí verður haldinn hátíðlegur í 3ja sinn Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar. Dagskráin hefst kl. 13.00 með fjölþjóðlegri göngu frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsi Reykjavíkur og setur Jón Gnarr borgarstjóri hátíðina. Á fjölmenningardeginum verður nýtt listaverk, sem unnið er af konunum í Söguhring kvenna, afhjúpað. Listaverkið er unnið út frá aboriginal art listgreininni og hefur Lilianne Vorstenbosch, sem hefur verið lengi í Söguhring kvenna, leiðbeint við gerð þess.
Nánar um fjölmenningardaginn