Nú hefur Gerðubergssafn bæst í hóp þeirra safna sem bjóða upp á „grænar og góðar“ bækur.
„Grænu og góðu“ bækurnar fást nú á aðalsafni, Gerðubergssafni og Kringlusafni og eru alveg fríar!!!
Á Safnanótt fór Borgarbókasafn af stað með nýtt verkefni sem kallast „Græn bók - góð bók. Endurlestur“.Með þessu verkefni vill Borgarbókasafnið búa til vettvang þar sem hægt er nálgast áhugaverðar og skemmtilegar bækur öllum að kostnaðarlausu. Þetta er eins konar skiptibókamarkaður að því undanskildu að grænu bækurnar eru sérvaldar. Skilyrði er að þær séu vel með farnar, hreinar og áhugaverðar.
Markmið verkefnisins er að auðvelda aðgengi að bókum, hvetja til lesturs, ýta undir endurvinnslu og -nýtingu og að hafa það skemmtilegt.
Gestir safnsins eru hvattir til að koma með bækur sem þeir eru búnir að lesa og finnst skemmtilegar og leyfa öðrum að njóta þeirra. Bækurnar verða merktar sérstaklega þessu verkefni Græn bók – góð bók.
Græna borðið í Gerðubergi