Borgarbókasafn býður börnum á aldrinum 8–12 ára að taka þátt í ritsmiðju vikuna 7.–10. júní í Gerðubergssafni. Dagskrá er á hverjum degi, tvær og hálfa klukkustund í senn. Í ritsmiðjunni er áhersla lögð á skapandi skrif barnanna sjálfra. Umsjón smiðjunnar er í höndum rithöfundarins Gerðar Kristnýjar og starfsmanna safnsins.
Ekkert þátttökugjald er í ritsmiðjuna. Upplýsingar og skráning fer fram í Gerðubergssafni, s. 557 9122.